Gestabók

Skrifa í Gestabók

  • Skráðir notendur gefi upp notandanafn og lykilorð efst á síðunni og skrifi svo færslu í reitinn hér að neðan. Gestabókarfærslan birtist strax.
  • Óskráðir notendur geta einnig skrifað færslu, en verða beðnir um nafn og netfang eftir að smellt er á "Senda". Þeir fá staðfestingarslóð senda í tölvupósti og þurfa að smella á hana til að gestabókarfærslan birtist.

Gestir:

Sigurður Böðvarsson

Hádí !

Sæll gamli minn. Þakka þér kveðjuna, ekki dónalegt að fá boð um að eignast bloggvin. Heldur sýnist mér þú þó kominn lengra í fræðunum en ég færari við ýmsar tæknibrellur og uppskriftir. Það vissi ég þó fyrir að Bach er vinur vina sinna. bestu kveðjur, sb.

Sigurður Böðvarsson, mið. 3. sept. 2008

Magga Grj.

Blessaður !! Ótrúlega skemmtileg lesning :)Haltu áfram að blogga.....Og drekka kaffi... ;) HEILL SÉ GAMLI KAFFIVAGNINN :):) Kveðja MG.

Margrét Grjetarsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 31. maí 2007

Þorvarður Ragnar Hálfdanarson

Sælir gestir

Ég ætti kannski að kíkja oftar í gestabókina... Neisko!! Blessaður vertu Oddur og familí í Rochester hinni stærri. Bestu kveðjur frá mér, Eygló og Steinunni Eddu sem nú er 3ja mánaða. Og sæll vertu einnig sveitungi minn í Tvíborgum. Ég sendi þér emil á UMN póstfangið ásamt nokkrum greinum.

Þorvarður Ragnar Hálfdanarson, mán. 12. mars 2007

Sæll gamli.

Gott að vita að þú ert enn lifandi. Kærar kveðjur frá okkur hér í Rochester hinni. Oddur, Meredith og synir.

Oddur Ólafsson (Óskráður), lau. 10. mars 2007

FreedomFries

Sæll!

Þar sem við erum sveitungar fannst mér skylt að senda þer formlega kveðju! Þú ert í Rochester, ekki rétt? Ég hef einu sinni keyrt þar í gegn. Fjölskylduvinur okkar er læknir þar, en það er sennilega svo mikið af læknum í rochester að það þýðir víst lítið að spyrja þig hvort þú þekkir hann! Ég eyddi óvart athugasemd þinni um Wikipedia af blogginu mínu - ef þú manst hvenær þessi grein birtist langar mig að lesa hana. Þú mátt líka senda mér hana í tölvupósti: magnus@umn.edu Bestu kveðjur frá St Paul!

FreedomFries, sun. 4. feb. 2007

Hlynur Þór Magnússon

Heill og sæll!

Óskaplega er gaman að sjá þig hér!

Hlynur Þór Magnússon, fim. 4. jan. 2007

Til hamingju.

Þetta er afar skemmtilegt blogg hjá þér kæri sonur. Það verður skemmtilegt að fylgjast með framhaldinu. Bestustu kveðjur. Þín mamma.

Edda Þorvarðardóttir (Óskráður), fim. 4. jan. 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband