Góð blöð og Sámur frændi mundar felgulykilinn...

Var að glugga í Utne Reader á vefnum enda um mína sveitunga að ræða. Ágætt blað og þeir voru svo vænir að gefa öðrum tímaritum viðurkenningu fyrir góða frammistöðu á nýliðnu ári. Þar fékk m.a. tímaritið BIDOUN viðurkenningu sem besta tímaritið í flokknum "Social/Cultural Coverage & Design". Ekki þekki ég mikið til umrædds tímarits en þeir mega eiga það að á heimasíðunni var þessi stórgóða mynd af Sámi frænda í árásarhug þar sem hann mundar voldugan lykil og gerir sig líklegan til að berja á Írönum...

Skopmynd en með nokkuð alvarlegan undirtón, ekki satt?

 

 

Sámur og skiptilykillinn

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlynur Þór Magnússon

Um daginn sá ég hliðstæða mynd á einhverjum vef, man ekki hvar. Það var mynd af teljara, rétt eins og kílómetrateljara í bíl, nema hvað það voru bókstafir í staðinn fyrir tölustafi. Fyrstu þrír stafirnir voru IRA og síðan var K að þokast burt en N að koma í staðinn ...

Hlynur Þór Magnússon, 18.1.2007 kl. 15:14

2 Smámynd: Róbert Björnsson

Sæll vertu my fellow Minnesotan.  Takk fyrir að benda lesendum á Utne...gott blað.

Róbert Björnsson, 23.1.2007 kl. 05:49

3 Smámynd: Þorvarður Ragnar Hálfdanarson

Blessaður og sæll Róbert. Mér sýnist sem nokkrir bloggi frá Minnesota. Gott fylki að búa í þó dagar mínir þar sú senn taldir.

Þorvarður Ragnar Hálfdanarson, 23.1.2007 kl. 17:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband