Mattheusarpassían er plata vikunnar...

Fjallalamb slappar af og hlustar á Matteus...

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Plata vikunnar eða allavega helgarinnar er Mattheusarpassía Jóhannesar S. Bach í flutningi Concentus Musicus Wien undir stjórn Nikolaus Harnoncourt. Alveg sérlega vel heppnaður flutningur og mikið lagt í umbúðir og meðfylgjandi lesefni. Svo ku vera ítarefni í tölvutæku formi á diskunum og hver veit nema ég verði einn daginn svo snjall að geta nýtt mér það.

Aðrar góðar útgáfur á umræddri passíu eru m.a. hin gamla og seigfljótandi upptaka Otto Klemperer og Philharmonia Orchestra og hin all nokkuð  frísklegri upptaka Gardiners & Co.  og kattagarnahljómsveitar hans.

Allar þrjár eru hverrar krónu virði... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband