8.4.2007 | 23:34
Þrjár páskadagsobservasjónir...
Rann mér til heilsubótar eftir að hafa graðkað í mig páskaeggið sem hún móðir mín sendi oss. Rann með ánni og um hverfi sem er miður gott. Skyggðist um og skráði í minni mér hluti sem á vegi mínum urðu. Sá þrennt er ég tel þess virði að reportera.
1. Sá tannfáa og illa hirta móður (eða kannski ömmu) sem fylgdist með syni sínum leika með bolta. Hún sat á bekk og virtist ekki vera heilsuhraust. Hún drakk Milwaukee's Best um páskadagseftirmiðdag en sá telst vart með vandaðri bjórum. Það hefði sosum ekki verið neitt betra þó drukkið hefði hún Guinness eða Boddington's.
2. Sá dauðan hund í læknum. Virtist sá vera af e.k. spanielkyni og leit út fyrir að vera (fyrrum) heimilishundur. Hann virtist og heilsutæpur.
3. Sá þrjár karlkyns stokkendur synda í átt að hundinum. Vegna vísindagreinar um meint óeðli stokkandakarla læddist að mér illur grunur.
Ég veit ekki hvernig eða hvort hægt sé að setja þessar þrjár observasjónir í samhengi. Held ég opni bara hvítvínsflösku...
Bloggar | Breytt 14.4.2007 kl. 04:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
8.4.2007 | 20:34
Reðursteik, typpagúllas og lóksbúðingur...
Allt er nú til. Meira að segja veitingastaðir sem sérhæfa sig í sérkennilegum sérréttum. Sérréttum sem eingöngu eru matreiddir úr reðrum aðskiljanlegustu dýra. Hvar er nú jafnréttið?
Veitingastaður einn í Kínaveldi sérhæfir sig í slíkum reðurréttum og má þar marga krásina sjá á matseðlinum s.s. sjaldgæfa tígratilla sem kváðu vera sérdeilis stímúlerandi til stórræða í bólinu...
The dish in front of me is grey and shiny.
"Russian dog," says my waitress Nancy.
"Big dog," I reply.
"Yes," she says. "Big dog's penis..."
Nancy has brought out a whole selection of delicacies.
They are draped awkwardly across a huge platter, with a crocodile carved out of a carrot as the centrepiece.
Nestling beside the dog's penis are its clammy testicles, and beside that a giant salami-shaped object.
"Donkey," says Nancy. "Good for the skin..."
She guides me round the penis platter.
"Snake. Very potent. They have two penises each."
I did not know that.
The restaurant's gristly menu was dreamt up by a man called Mr Guo. He is 81 now and retired.
After fleeing China's civil war back in 1949, he moved to Taiwan, and then to Atlanta, Georgia, where he began to look deeper into traditional Chinese medicine, and experiment on the appendages of man's best friend.
Apparently, they are low in cholesterol and good, not just for boosting the male sex drive, but for treating all sorts of ailments.
Bon appetit!
8.4.2007 | 18:57
Mitt Romney og hin ævilanga veiðiástríða hans...
Skondin frétt af mormónanum og forsetaframbjóðanda Repúblíkanaflokksinns. Romney hefur digurbarkalega rætt um ævilanga ástríðu sína tengda skotveiðum. Sennilega er þetta eitthvað sem á að höfða til skotglaðra Repúblíkana og NRA meðlima.
I purchased a gun when I was a young man. I've been a hunter pretty much all my life," he said this week in Keene, N.H., to a man sporting a National Rifle Association cap.
Eitthvað hefur þessi hólkurinn nú snúist í höndum Romney en upp hefur komist að Romney sótti aldrei um veiðileyfi í þeim fylkjum sem hann bjó í.
Officials in the four states where Mitt Romney has lived say the Republican presidential contender, who calls himself a lifelong hunter, never took out a license.
Republican presidential candidate Mitt Romney is taking a second shot at describing his hunting experience.
The former Massachusetts governor has called himself a lifelong hunter, yet his campaign acknowledged that he has been on just two hunting trips - one when he was 15 and the other just last year.
Campaigning in Indianapolis on Thursday, Romney said he has hunted small game since his youth.
"I'm not a big-game hunter. I've made that very clear," he said. "I've always been a rodent and rabbit hunter. Small varmints, if you will. I began when I was 15 or so and I have hunted those kinds of varmints since then. More than two times."
...
He joined the National Rifle Association last August as a "Lifetime" member.
Svo stórveiðimaðurinn Romney hefur aðallega fengist við að murka lífið úr nagdýrum og öðru meindýrasmælki...
Eitthvað er hann nú að reyna að útskýra þetta fyrir fólki en ekki veit ég hversu trúverðuglega það hljómar...
Annars er afstaða Romney til byssueignar nokkuð sérkennileg þar sem hann hefur bæði verið með og á móti (það er reyndar ekki eina skiptið sem hann virðist sveiflast til). Það verður þó að telja honum til tekna að hafa viljað takmarka eign manna á morðtólum (e. assault rifles) og skýtur það þó skökku við að vera meðlimur í NRA.
Campaign spokesman Eric Fehrnstrom said Wednesday that Romney wasn't trying to mislead anyone, and he promoted Romney's support of gun-ownership rights.
Romney has also supported gun control. When he ran unsuccessfully for the Senate in 1994 he backed the Brady law and a ban on assault-style rifles. As governor, he supported the state's strict gun-control laws and signed into law one of the nation's tougher assault weapons laws.
Romney has been criticized for changing positions on issues such as abortion and gay rights during his campaign for the Republican nomination for president. Although he once supported strict gun control measures, he has spoken in favor of gun ownership rights while on the campaign trail and joined the National Rifle Association as a "Lifetime" member last year.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2007 | 04:05
Ich ruf zu dir, Herr Jesu Christ...
Þá er maður búinn að læra á tónlistarspilarann. Erfið fæðing og undarlegt nokk þá neitaði moggablogg að upphlaða kantötu 82 (Ich habe genug) eftir Jóhannes S. Bach og kannski hefur bloggið bara fengið genug...
Setti þó inn eitthvað af góðu efni eftir hann Bach blessaðan. Allt ákaflega páskalegt ekki satt þó kantata 91 sé reyndar jólakantata ef mig brestur ekki minni.
Annars langar mig að benda á aldraða upptöku Edwin Fischer af Busoni útgáfu Bach kantötubrotsins Ich ruf zu dir, Herr Jesu Christ... Þessi upptaka er frá 1933 og hefur sjarmerandi suð. Umfram allt er hún þó geysilega falleg.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 19:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.4.2007 | 19:10
Mattheusarpassían er plata vikunnar...
Plata vikunnar eða allavega helgarinnar er Mattheusarpassía Jóhannesar S. Bach í flutningi Concentus Musicus Wien undir stjórn Nikolaus Harnoncourt. Alveg sérlega vel heppnaður flutningur og mikið lagt í umbúðir og meðfylgjandi lesefni. Svo ku vera ítarefni í tölvutæku formi á diskunum og hver veit nema ég verði einn daginn svo snjall að geta nýtt mér það.
Aðrar góðar útgáfur á umræddri passíu eru m.a. hin gamla og seigfljótandi upptaka Otto Klemperer og Philharmonia Orchestra og hin all nokkuð frísklegri upptaka Gardiners & Co. og kattagarnahljómsveitar hans.
Allar þrjár eru hverrar krónu virði...
Tónlist | Breytt s.d. kl. 19:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Enn virðist vera að fjara undand hinum lánlausa dómsmálaráðherra, Alberto Gonzales. Nú hefur sérlegur ráðgjafi hennar, Monica Goodling, sagt af sér. Monica þessi hefur til þessa verið í einhverskonar undarlegu leyfi frá störfum sem merkilegt nokk, hófst er moldviðrið byrjaði. Hefur hún verið nefnd sem vitni í rannsókninni á hinum pólitísku hreinsunum Bush á sakssóknurum víða um BNA en allt lítur út fyrir að það hafi hún leikið stórt hlutverk. Monica hefur "pleaded the fifth" í þeirri von um að þurfa ekki að mæta fyrir rétt.
Það er athyglisvert að líta aðeins nánar á feril Monicu, svona rétt til að sjá hversu vel menntaður og snjall maður þarf að vera til að komast í stöðu sérlegs ráðgjafa dómsmálaráðherra BNA, rétt skriðinn yfir þrítugt. Hún hlýtur að vera ákaflega snjöll og vel menntuð kona - eða kannski bara rétt tengd inn í kerfið.
Goodling's background is curious. Now 33, she graduated from Messiah College, an evangelical Christian school, in 1995. After a year at the American University Washington College of Law, she enrolled at Pat Robertson's Regent University Law School in 1996 - the year it received full accreditation from the American Bar Association. She graduated from Regent in 1999. That November, Goodling went to work for the Republican National Committee as a junior research analyst in the opposition research shop. When her boss, Barbara Comstock, left the RNC to head the Office of Public Affairs in the Ashcroft Justice Department, Goodling went with her.
After spending two years in Public Affairs, Goodling was detailed to the U.S. Attorney's Office for the Eastern District of Virginia for a two-year stint in order to get the "field experience" typically required for the attorney general counsel's job. She served only six months. (The head of EDVA at the time was Paul McNulty, who, having since become a deputy attorney general, also played a role in the firing of the eight U.S. attorneys.)
...
Of course there are many smart, dedicated people working as political appointees for Bush. And every administration has its share of people who find their way into jobs for which they have no qualifications - that's the nature of the patronage system.
The gamble patrons make is that it's worth rewarding unqualified loyalists because they will be hidden in the bureaucracy and never become important enough to draw attention. But the Bush administration has lost this wager more times than is becoming; perhaps more times than is conscionable.
What makes the case of Monica Goodling not only unsettling but actually sad, is that put into a job she wasn't qualified for, she participated in bad decisions (i.e., the firings), which then became public - and when the chips were down, she didn't even stay loyal. The president and the attorney general both promised that their employees would come clean with Congress. Other Justice staffers, including McNulty and Kyle Sampson, have at least answered questions.
Heimild: Philadelphia Enquirer (hárbeitt grein!).
Monica þessi var undergraduate í Messiah College sem er háskóli alltengdur evangelísku kirkjunni og það er svo sem ekkert við það að athuga. Messiah er samt trauðla talinn til merkari undergrad skólum BNA þó þar megi vafalítið sækja sér góða menntun. Laganám Monicu er nokkuð merkilegra en það fór fram við þá merku menntastofnun, Regent University, sem stofnaður var af Pat Robertson sem margir kannast við fyrir kristilegan kærleika og umburðarlyndi, s.s. hugmyndir hans um að ráða Hugo Chávez af dögum. Lengi má ræða um hinar kristilegu kærleikshugmyndir Pat Robertsons en annars gerir Wikipedia þeim ágæt skil í umfjöllun sinni (minni þó á að Wikipediu þarf að taka með fyrirvara en meira að segja Conservapedia tínir til nokkur ummæla hans en varast þó að túlka nokkuð eða dæma...). Nóg um hann Pat - í bili...
Ég bendi á frábæra grein í Slate.com í dag þar sem Dahlia Lithwick fjallar um þau áhrif sem skóli Pat Robertsons, Regent University, hefur haft innan stjórnkerfis BNA. Mjög fróðleg en dálítið skuggaleg lýsing og nokkuð í samræmi við það sem áður hefur verið ritað og birt í Boston Globe. Það er ekki einleikið með frændpotið hjá ráðamönnum hér vestra og mikið gert til að koma rétthugsandi fólki í áhrifastöður.
Goodling is only one of 150 graduates of Regent University currently serving in this administration, as Regent's Web site proclaims proudly, a huge number for a 29-year-old school. Regent estimates that "approximately one out of every six Regent alumni is employed in some form of government work." And that's precisely what its founder desired. The school's motto is "Christian Leadership To Change the World," and the world seems to be changing apace. Former Attorney General John Ashcroft teaches at Regent, and graduates have achieved senior positions in the Bush administration. The express goal is not only to tear down the wall between church and state in America (a "lie of the left," according to Robertson) but also to enmesh the two.
Heimild: Slate.com
Það má svo sem spyrja sig að því hvort þessháttar fólk sé æskilegt í stjórnunarstöður. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem að ónytjungar hafa verið valdir í embættisstöður hjá Bush (kannski er nú óréttlátt að kalla Monicu ónytjung).
This is not the first time an unqualified appointee has embarrassed the Bush administration. There have been embarrassing appointments at all levels. The New Republic compiled many of these in a feature dubbed "Hack Watch." Some of the highlights: Patrick Rhode, a local TV anchor and Bush advance man who was appointed as the acting deputy director of FEMA; John Pennington, who received his bachelor's from an unaccredited correspondence school just before being appointed as the Region 10 director of FEMA; Israel Hernandez, a young University of Texas grad who jumped on the Bush gubernatorial campaign in 1994 and rode a string of assistant jobs around Bush until 2005, when he was appointed the "assistant secretary for trade promotion and director general of the U.S. & foreign commercial service" at the Commerce Department.
Heimild: Philadelphia Enquirer (hárbeitt grein!).
Hver er annars búinn að gleyma ónytjungnum Michael "heck-of-a-job" D. Brown sem leiddi FEMA af styrk og festu gegnum fellibyinn Katrínu...?
Það skondnasta er þó það að hugsanlega verður Bush minnst fyrir sitt "Monica Problem" rétt eins og fyrirrennari hans Clinton...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.4.2007 | 18:54
Ítroðsla ómetis og auglýsinga...
Það vakti athygli í fréttum hér vestra í síðustu viku er niðurstöður rannsókna á ruslfæðisauglýsingum í barnasjónvarpi voru birtar. Rannsókn þessi sem framkvæmd var af Kaiser Family Foundation og University of Indiana sýndi það svart á hvítu að blessaðir krakkaormarnir eru bombarderaðir með auglýsingum um kaloríuhlaðið ruslfæði. Þetta kemur svo sem engum á óvart en er vissulega umhugsunarefni í landi þar sem offita barna er vaxandi vandamál (sem einnig virðist vera vandamál á Íslandi). Þeir krakkar sem mest glápa á sjónvarp, þ.e. börn á aldrinum 8-12 ára, munu sjá um 21 auglýsingu á dag eða sem nemur 7600 auglýsingum á ári. Ég get fullvissað ykkur um að ekki er um að ræða auglýsingar á léttmjólk og nýjum gulrótum... Þetta er í samræmi við fyrri rannsókn Institute of Medicine á sama vandamáli (já, ég sé þetta sem stórt og feitt vandamál).
Children 8 to 12 years old watch the most an average of 21 food ads a day, or more than 7,600 a year, according to the study, released Wednesday by the non-profit Kaiser Family Foundation and conducted with researchers at Indiana University.
The researchers said about a third of commercials aimed at children and teens tout candy and snacks -- fare that is often high in fat and added sugar.
According to the report, on a typical day the average American child aged 8-12 sees:
- 5 ads for candy and snacks
- 4 for fast food
- 4 for soft drinks, including soda
- 3 for cereal
- 2 for restaurants
- 1 for prepared foods
- 2 for dairy, water and 100% juices, meat, grains, vegetables, or fruit, combined
Another major report on this topic, released in December 2005 by the Institute of Medicine, said that more than $10 billion a year is spent to market foods and beverages to children, mostly for products not considered nutritious. The report called for sweeping changes in the marketing of foods and beverages to children.
"We now have data that conclusively shows kids are seeing an overwhelming number of ads for unhealthy food on all types of TV shows," Sen. Tom Harkin (D-Iowa) said in a statement. "The 'childhood obesity epidemic' isn't just a catchphrase; it's a real public health crisis."
Tilvitnanir að ofan eru frá USA Today, Washington Post og WebMD
Er ekki mál að linni? Nú er ég nokkur andstæðingur forræðishyggju, allavega ef er um að ræða athæfi sem ekki spillir heilsu annarra en þeirra sem athæfið stunda, en er ekki stundum talið rétt að hafa vit fyrir börnum? Augljóslega er ekki hægt að reiða sig á matvælaiðnaðinn eða foreldra. Hér þarf sennilega að koma til afturhalsdssinnuð og rússnesk handstýring en ef það er það sem ég þarf að sætta mig við til að koma í veg fyrir að börnin mín rúlli í spikinu niður Laugaveginn þá segi ég eins og kaninn: "Bring it on!"
Heilsufar og mannamein | Breytt s.d. kl. 19:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.4.2007 | 04:52
Ráðamenn éta verðlaunakanínur ætlaðar til undaneldis...
Frétt vikunnar er í Der Spiegel International. Þar segir frá hinum lánlausu undaneldisverðlaunarisakanínum eftirlaunaþegans Karl Szmolinsky. Karl þessi hafði komist í fréttirnar fyrr á árinu er nokkrar ofurkanínur hans voru sendar til sæluríkisins Norður Kóreu en til stóð að rækta undan þeim fleiri slíkar ófreskjur til manneldis. Var um að ræða allt að 10 kílóa flykki, mun stærri en illskeytta kanínan í Monty Python and the Holy Grail. Kanínur svo þéttvaxnar að þær nægðu til að seðja 8 kóreanska svangmaga (mér er ekki kunnugt um að inn í þessa jöfnu sé reiknað þarlent meðlæti).
Upp hefur komist um svik og svindilbrögð. Ráðamenn kóreanskir ku hafa lagt sér verðlaunakanínurnar til munns svo ekkert varð úr ræktuninni. Þeir átu sumsé útsæðið.
Karl brást hinn versti við, fór í blöðin og sagði almenningi frá kanínuraunum sínum og þeirri staðreynd að restina af þeim mátti nú finna í mögum og salernisrotþróm framámanna í N. kóreanska kommúnistaflokknum. Ekki er vitað hvort hinn mildi Kim Jong Il er einn hinna seku. Nú er Karli meinað að ferðast til N. Kóreu að vitja sinna kanína.
He had been due to travel to North Korea after Easter to provide advice on setting up a breeding facility for the rabbits, which can produce around seven kilos of meat.
But his trip was cancelled at short notice. Szmolinsky said he got a call from a North Korean official last Thursday informing him that the trip was off because the government was unhappy with the way in which a local Berlin newspaper had reported about the deal.
Szmolinsky said he suspected Robert I and his fellow bunnies had been eaten by top officials and that that was the real reason why he wasn't getting a visa. "That's an assumption, not an assertion," he added. "But they're not getting any more.
Ráðamenn neita að hafa étið kanínurnar og bregðast illa við ásökununum.
The North Korean embassy in Berlin denied that the rabbits were dead and said no one at the embassy had contacted Szmolinsky. "The rabbits aren't intended to be eaten, they are for breeding purposes," a spokesman said.
Where are the bunnies?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.4.2007 | 01:34
Súkkulaðijesú...
Eitthvað hefur aðdragandi páskanna verið þeim kaþólikkunum erfiður. Fyrst var það auðvitað súkkulaðijesúsinn hans Cosimo Cavallaro sem hrelldi þá blessaða. Sjálfum fannst mér þetta hið sniðugasta uppátæki og sérlega páskalegt. Súkkulaðiegg, súkkulaðikanínur og súkkulaðijesús...
Eitthvað féll þetta í grýttan jarðveg og neyddist hann Cósímó til að aflýsa sýningunni á jésúsnum brúna og sæta. Hann kvað jafnvel hafa fengið dólgslegar upphringingar frá kaþólikkum sem hótuðu honum lífláti og örgustu pínslum til eilífðarnóns við kolamokstur hjá þeim með klaufirnar, hornin og halann. Þar hefði nú súkkulaðijésúsinn orðið hæfur til drykkjar. Það var eins gott að ekki var um að ræða spámanninn Múhameð.
Nú, eftir að Cósímó hrokklaðist á brott frá NY með súkkulaðið, þá hafa víst aðrir boðist til að skjóta skjólshúsi yfir jesúsinn hans. Reyndar minnir þetta allt á lag Tom Waits, Chocolate Jesus.
Dont go to church on sunday
Dont get on my knees to pray
Dont memorize the books of the bible
I got my own special way
Bit I know jesus loves me
Maybe just a little bit more
I fall on my knees every sunday
At zerelda lees candy store
Well its got to be a chocolate jesus
Make me feel good inside
Got to be a chocolate jesus
Keep me satisfied
Well I dont want no anna zabba
Dont want no almond joy
There aint nothing better
Suitable for this boy
Well its the only thing
That can pick me up
Better than a cup of gold
See only a chocolate jesus
Can satisfy my soul
(solo)
When the weather gets rough
And its whiskey in the shade
Its best to wrap your savior
Up in cellophane
He flows like the big muddy
But thats ok
Pour him over ice cream
For a nice parfait
Well its got to be a chocolate jesus
Good enough for me
Got to be a chocolate jesus
Good enough for me
Well its got to be a chocolate jesus
Make me feel good inside
Got to be a chocolate jesus
Keep me satisfied
Ekki var hann Waits nú brenndur fyrir það lagið.
Þegar kaþólskir voru um það bil að jafna sig þá urðu þeir þess áskynja að í Chicago var búið að stilla upp pappajésús í líki Barack Obama. Obama sver af sér tiltækið enda veit ekki á gott að eggja trúaða Bandaríkjamenn til ergelsis, svona rétt fyrir kosningar.
David Cordero, 24, made the sculpture for his senior show after noticing all the attention Obama has received since he first hinted he may run for the presidency.
"All of this is a response to what I've been witnessing and hearing, this idea that Barack is sort of a potential savior that might come and absolve the country of all its sins," Cordero said. "In a lot of ways it's about caution in assigning all these inflated expectations on one individual, and expecting them to change something that many hands have shaped."
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.3.2007 | 03:54
Halliburton says salaam...
Sá þetta á Slate. Kómískt ekki satt og staðfest af sjálfum Halliburton.
Halliburton Company (NYSE: HAL) announced today at a regional energy conference in the Kingdom of Bahrain the opening of a corporate headquarters office in the United Arab Emirates. Halliburton Chairman, President and Chief Executive Officer Dave Lesar will move to Dubai to lead the companys efforts in growing Halliburtons business in the Eastern Hemisphere, an important market for the global oil and gas industry.
Hvað á maður að segja? Gróðinn í Asíu greinilega orðinn svo mikill að veruleg eftirsjá er farinn að verða að þeim aurum er Skattmann fær...
Democratic lawmakers, led by Sen. Patrick Leahy, D-Vt., accused the company of dodging taxes and called the move "corporate greed at its worst." How much will Halliburton save in U.S. taxes?Not much, for the time being. Halliburton's headquarters has moved, but the company is still incorporated in Delaware and remains subject to U.S. law and taxes.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)